raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég velti því auðvitað fyrir mér í dag í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram hverjar af þeim athugasemdum sem fram hafa komið geti meiri hluti atvinnuveganefndar einfaldlega engan veginn fallist á. Er markmiðið að hafa málið í ágreiningi?
Svo langar mig að spyrja hv. þm. Þorstein Sæmundsson um viðhorf hans til þess að taka málið inn núna og kalla atvinnuveganefnd saman í fyrramálið. Finnst honum eitthvað mæla gegn því? Telur hann að það sé málinu til góðs að halda umræðunni áfram í kvöld og þá á morgun?
Nú sé ég að hv. formaður atvinnuveganefndar er kominn í salinn. Það væri líka ágætt að heyra viðhorf hans, hann hefur ekki mikið verið viðstaddur umræðuna, í það minnsta ekki í þingsal, þannig að það væri áhugavert að vita hvort þeir telji það málinu til framgangs að halda því áfram inn í nóttina (Forseti hringir.) og á morgun eða taka það inn í nefndina í fyrramálið og stoppa umræðuna núna.