144. löggjafarþing — 69. fundur,  24. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[21:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Þorsteinn Sæmundsson) (F) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Þessi umræða hér í dag hefur verið um margt alveg ágæt og ég sé enga ástæðu til að hætta henni við svo búið. Ég held að það sé alveg ágætt að þoka henni lengra. Þetta mál á eftir að fara til 3. umr. þannig að ég sé ekki nokkurn skapaðan hlut að því að við höldum áfram að safna í sarpinn þeim athugasemdum sem hv. þingmenn hafa við þetta mál og framgang þess þannig að ég legg til við hæstv. forseta að við höldum umræðunni áfram og förum eins langt með hana og hún kemst. Eins og ég segi er um að gera að fá meira fram af um margt ágætum athugasemdum sem fram hafa komið. Síðan sjáum við hvað verður úr því þegar málið gengur á milli 2. og 3. umr.