störf þingsins.
Hæstv. forseti. Um leið og ferðamönnum fjölgar hér á landi, telja hátt í milljón á ári, og við aukum markaðssetningu landsins yfir vetrartímann, höfum áhyggjur af umgengni og ágangi á náttúruna og hvort við framleiðum næg matvæli til að mæta þeirri aukningu og veita íbúum landsins lágmarksþjónustu, þá fellur öryggið í skuggann.
Á kynningu hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra á náttúrupassanum í Borgarnesi fyrr á þessu ári kom meðal annars fram í umræðum hvers vegna við horfum ekki meira á stýringu ferðamanna um landið, þ.e. að beina þeim á eftirtektarverða staði sem hafa ekki lent illa í ágangi af aðsókn ferðamanna. Á sunnudaginn síðasta lentu tugir ferðamanna í vanda í vonskuveðri á Suður- og Suðausturlandi. Rúður brotnuðu og fólk sat kalt klukkustundum saman inni í bílum á meðan fennti inn í þá. Það var heppni að ekki fór illa, en það sem af er þessu ári hafa björgunarsveitirnar fengið um 300 útköll, sem er miklu meira en á sama tíma á síðasta ári. Yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli hummaði þetta vel saman þegar hann sagði að lögreglan væri of fáliðuð, því að fjölgun lögreglumanna hefur ekki haldist í hendur við þá gríðarlegu fjölgun ferðamanna sem nú er orðin og stefnir í að verða enn meiri.
Um leið og við viljum auka tekjur og verðmæti landsins með heimsóknum ferðamanna megum við ekki gleyma undirstöðum eins og löggæslu og þá má aukning ferðamanna ekki bitna á þeirri þjónustu sem landsmenn greiða fyrir og eiga rétt á að fá. Það eru mörg verkfæri sem við getum bætt til að hjálpa lögreglu og draga úr útköllum björgunarsveita við hættulegar aðstæður, til að mynda þær slár sem loka vegum. Þrátt fyrir að menn á vegum Vegagerðarinnar sjái um að setja þær niður eru allt of margir sem reyna að sneiða hjá þeim og komast áfram ferða sinna og lenda þá í vandræðum sem eru okkur dýrkeypt sem þjóð. Björgunarsveitir eru sjálfboðaliðasamtök og þó svo að fólk sem innan þeirra starfar launalaust geri það af heilum hug þá eigum við ekki að treysta svona mikið á þær sveitir eins og við gerum, treysta á að þær séu alltaf til taks til að bjarga þeim þætti í samfélagsstoðinni sem er í lamasessi. (Forseti hringir.) Fyrst við ráðamenn viljum hugsa fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í landinu megum við ekki gleyma stoðum og öryggi allra.