144. löggjafarþing — 70. fundur,  25. feb. 2015.

vextir og verðtrygging o.fl.

561. mál
[16:34]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fell nú ekkert í þá gryfju að tala um lágtekjufólk, fólk er bara ósköp einfaldlega í þeirri stöðu að vera með lágar tekjur. Það þarf ekkert að vera það alla ævi en það er það og meðan svo er er ekki hægt að loka augunum fyrir því. Það er ekki alltaf hægt að tryggja að fólk bæti við sig tekjum þó að ég vilji allt gera til að það sé mögulegt.

Aðeins til viðbótar varðandi þetta lánaform þá er líka mjög athyglisvert að þrátt fyrir alla umræðuna um verðtryggingu síðustu missiri og alla gagnrýnina á hana og neikvæða umræðu, sem vissulega er innstæða fyrir vegna misgengisins mikla í kjölfar hrunsins, hafa 40 ára jafngreiðslulán verið vinsælasti kosturinn á fasteignamarkaðnum síðustu mánuði og missiri. Það er náttúrlega mjög sérkennilegt að ríkisstjórnin ætlar sér að byrja á að banna þann kost áður en hún þróar og útfærir aðrar leiðir með fólk fyrir lágar tekjur til að eignast húsnæði.