vextir og verðtrygging o.fl.
Herra forseti. Jú, ég held að það sé nokkuð ljóst að við höfum talsvert miklar heimildir til að útfæra þetta. Það hlýtur bara að vera. Við værum ekki efnahagslega sjálfstæð þjóð ef við hefðum ekki heimildir til þess að setja ýmsar varúðarreglur inn í löggjöf um hluti af þessu tagi. Réttur þjóðríkja þegar kemur að jafn mikilvægum hlut og að verja fjármálastöðugleika er náttúrlega alveg ótvíræður. Þá er ýmislegt heimilt eins og kunnugt er.
Vissulega má deila um þetta því það er skrýtin staða að ESA telji þetta brot á fjórfrelsinu í landi þar sem eru gjaldeyrishöft. Það er vissulega fyndið að ræða það út frá þeim vinkli, en kannski horfa þeir fram hjá þeim í þessu tilviki og hugsa sér að svona megi þetta ekki vera til frambúðar. Ég hef engar áhyggjur af því að við getum ekki sett inn mjög sterkar varúðarreglur inn.
Í sambandi við bannið á sínum tíma, já, þetta mun sjálfsagt hafa verið ein af röksemdunum. Nú man ég ekki alveg hvernig aðallega var um þetta fjallað. Ætli menn hafi ekki líka verið meðvitaðir um að það gæti verið áhættusamt fyrir fólk að spila í þessu. Það er alveg rétt að gagnvart hagstjórnartækjunum og vaxtastýritækinu er það náttúrlega vafasamt þegar þeim mun stærri hluti útlánasafnsins í landinu er kominn til hliðar og vextirnir ráðast kannski tímabundið af lágum erlendum vöxtum eða auðvitað það að verðtryggingin dregur úr gildi nafnvaxtaákvarðana. Það er enginn vafi á því að best væri að allar skuldir í landinu væru þá í óverðtryggðum íslenskum krónum þannig að vaxtaákvarðanir um þær krónur bitu til fulls.