vextir og verðtrygging o.fl.
Herra forseti. Ég held að hv. þingmaður sé of svartsýnn. Fasteignaverð hefur nú hækkað í Vesturbænum. Ég er ekkert viss nema hv. þingmaður teldist alveg bær til að taka að minnsta kosti smálán, erlent lán. (Gripið fram í: Smálán?) Ekki smálán, en svona dálítið lán.
Ég legg ekki þann sama skilning í — og það kannski er örlítil vík á milli vina — að þetta mál í sjálfu sér snúist endilega um þessi gömlu góðu umræðu um hvort krónan sé algjörlega ónýt eða ekki. Þetta er auðvitað af því við erum í EES. Það er hér frelsi til fjármagnsflutninga, frelsi til staðfestu og að veita þjónustu og það gildir líka um þá aðila að Evrópusambandinu eða EES sem hafa sína eigin gjaldmiðla. Það er það sem hér á sérstaklega við. Það er meira spurningin um það í hvaða mæli menn nýta sér síðan þennan möguleika, það er mælikvarði á trú manna á okkar eigin gjaldmiðil.