144. löggjafarþing — 70. fundur,  25. feb. 2015.

vextir og verðtrygging o.fl.

561. mál
[17:46]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er verið að opna lagabálkinn og menn sýna á spilin með það hvernig þeir forgangsraða. Það er frekar ákveðið að forgangsraða í þágu ESA sem er að ýta á eftir mönnum með ákveðna þætti og geyma algjörlega áætlanir ríkisstjórnarinnar um það hvernig menn ætla að efna eitt stærsta kosningaloforð síðustu kosninga, um afnám verðtryggingar. Það segir beinlínis í skýrslunni, sem hæstv. ráðherra sagði í umræðum fyrir jól að yrði fylgt fast eftir, að í upphafi árs 2015 verði stigin þessi fyrstu skref. Þau eru ekki stigin þótt hér hafi augljóslega verið lögð töluverð vinna í að opna sömu löggjöf og þyrfti að opna í því tilfelli. Það er þess vegna eðlilegt að við ræðum þetta. Af hverju segi ég það? Það er vegna þess að þegar svona loforð eru gefin skapast gríðarlegar væntingar hjá stórum hópi fólks.

Við þekkjum það öll sem höfum þurft að lifa við verðtrygginguna að hún leggst þungt á heimilin í landinu. Þess vegna má ekki líta til væntinga fólks af einhverri léttúð. Þær eru alvöru og þær voru skapaðar af stjórnmálamönnum sem lofuðu að gera þetta. Það er þess vegna, virðulegi forseti, sem svo miklu máli skiptir að menn sýni að þeim sé alvara. Aðrir stjórnmálamenn sögðu í þessum stóli í aðdraganda kosninga að það væri ekkert áhlaupaverk og mögulega ekki gerlegt að afnema verðtryggingu með þeim hætti sem menn ræddu hér, sérstaklega framsóknarmenn í aðdraganda síðustu kosninga. Ég held að við sjáum hér birtingarmynd þess að menn séu hægt og rólega að átta sig á því, meira að segja framsóknarmenn, að það sé ekki áhlaupaverk að afnema verðtryggingu eða hægt að gera það rétt sisvona með viljann að vopni eftir hádegi eða eftir næstu kosningar, heldur (Forseti hringir.) sé það vandasamt verk og það hafi ekki verið rétt að skapa væntingar eins og gert var í aðdraganda síðustu kosninga.