144. löggjafarþing — 70. fundur,  25. feb. 2015.

vextir og verðtrygging o.fl.

561. mál
[19:04]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta yfirferð um málið og ekki síður pólitíska stöðu þess. Það liggur fyrir að sjaldan eða aldrei hefur sest ríkisstjórn að völdum sem hefur haft eins mögnuð áform uppi um kúvendingar og miklar réttlætisaðgerðir, að bjarga heimilunum í landinu og afnema verðtrygginguna svo aðeins tvennt sé talið af þeim áformum sem uppi voru. Nú er svo komið að við erum að ljúka hér öðrum vetri þessarar kraftaverkaríkisstjórnar án þess að miklu hafi verið landað af því sem þar er undir og var á áætlun.

Ég vil spyrja hv. þingmann, sem er reynslumikil og raunar reynslumest kvenna hér á Alþingi, sat hér sem fjármála- og efnahagsráðherra sjálf, hvernig hún sjái þetta tiltekna frumvarp í pólitísku samhengi þeirra loforða sem fram hafa komið og líka í samhengi við þá vegferð sem eru samskiptin við Evrópusambandið og EES bæði ljóst og leynt. Þetta er að draga sig upp í það að verða dálítið kúnstug staða þegar menn eru hér að elta ráðgjöf og tilmæli þeirra sem þeir hatast mest við, en uppfylla ekki sín eigin loforð. Ég vil spyrja hv. þingmann um hennar mat á þessum þáttum.