vextir og verðtrygging o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Mér þótti það ákaflega athyglisvert sem fram kom í ræðu hv. þm. Vilhjálms Bjarnasonar sem er jú býsna glöggur um fjármálamarkaðinn. Hann lýsir því að þrátt fyrir hið gríðarlega gengisfall íslensku krónunnar og þrátt fyrir þann mikla skell sem kom á lán í erlendum myntum vegna hruns gjaldmiðilsins okkar, þessa litla og smáa sem hefur gengið svo illa að reka, þrátt fyrir hið gríðarlega högg hjá þeim sem fengu ekki leiðréttingu á erlendum lánum sínum, voru með lögleg erlend lán sem kallað er, þá séu þeir núna, aðeins sjö árum síðar, betur settir með lán í dollurum og á vöxtum þeim sem fylgja dollaranum en þeir sem tóku verðtryggð íslensk lán; að vaxtakostnaðurinn á sjö árum á verðtryggðum íslenskum lánum sé meiri en samanlagt gengistapið og vaxtakostnaðurinn við dollaralán á tímabili sem er óhagstæðasta tímabil fyrir gengislán á Íslandi um áratugaskeið.
Ég hlýt að velta því fyrir mér, af því að maður er náttúrlega af þeirri kynslóð, eins og hv. þingmaður, þar sem margir eru húsnæðiskaupendur og með talsvert mikinn fjármagnskostnað af lánum sínum, hvort þetta segi ekki býsna mikla sögu um tilkostnaðinn við að halda úti sjálfstæðri mynt og hvort ekki sé óhætt að segja að hann sé með ólíkindum ef jafnvel við gengishrun hefur verið hagstæðara að vera með lán í dollurum en í verðtryggðum íslenskum krónum.