144. löggjafarþing — 70. fundur,  25. feb. 2015.

vextir og verðtrygging o.fl.

561. mál
[19:38]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar til að staldra við síðustu efnisatriði hennar, þ.e. þau atriði sem lutu að jöfnuði í samfélaginu og því að hvaða leyti frumvarpið snertir á þeim grundvallarþætti samfélaga yfir höfuð og kannski líka grundvallarþætti í pólitískri afstöðu okkar sem eigum hér orðaskipti, þ.e. mikilvægi jöfnuðar í góðu samfélagi.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að ég þykist vita að hann hafi fylgst nokkuð með umræðunni í dag og hann hefur áhyggjur af þeim tiltekna þætti að hér sé mönnum skipt í tvo hópa og ójöfnuður aukist, hvort hann telji að það sé raunverulegur opinn möguleiki á því að bregðast við þeim athugasemdum sem hér er verið að bregðast við frá ESA og í sömu andrá að forðast ójöfnuð. Er það möguleiki sem hv. þingmaður sér og þar með eins og hann hefur sjálfur boðað að hann sjái möguleika á því að hann gæti jafnvel hugsanlega stutt málið? Hvaða breytingar þyrftu þá að eiga sér stað á málinu til að hann sæi möguleika á því?

Hins vegar langar mig að biðja hv. þingmann líka að dýpka aðeins vangavelturnar varðandi reglusetningarvaldið til Seðlabanka Íslands af því að hann telur að leið fjármálaráðherra sé góð í frumvarpinu. Ég hef efasemdir um það vegna árekstra við stöðu, markmið og verkefni Seðlabanka, samkvæmt 1. gr. laga um hann, og vil biðja hv. þingmann að rökstyðja það betur en hann gerði í (Forseti hringir.) ræðu sinni af hverju hann telji þetta vera farsæla leið sem fjármálaráðherra leggur til í frumvarpinu.