144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

kvöldfundur.

[14:43]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta var ljóst hver staða málsins var í fyrrakvöld og þess vegna var það meðal annars niðurstaða forseta að hafa þetta mál ekki á dagskrá í gær og freista þess að vinna þar tíma til að vita hvort hægt væri að finna lausnir á þeim hnút sem upp var kominn. Það tókst ekki (Gripið fram í.) og þess vegna varð niðurstaða forseta sú að það væri óhjákvæmilegt að boða til kvöldfundar þó að forseti hafi almennt talað verið ákaflega tregur til að boða til kvöldfunda eins og augljóst er.