144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

kvöldfundur.

[14:46]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. (BirgJ: Ég var búin að biðja um orðið.)

(Forseti (EKG): Forseti stjórnar hér fundi. Forseti tók eftir því að hv. þm. Birgitta Jónsdóttir hafði beðið um orðið og hafði skráð það niður og hv. þingmaður er næstur á mælendaskrá.)

Virðulegi forseti. Það kemur mér mjög á óvart að hér sé áformaður kvöldfundur í lok febrúar. Það er ekki eins og stóru málin bíði í bunkum handan við hornið frá ríkisstjórninni. Við fáum frekari fréttir af því að stóru málin komi ekki fram eða að bið sé á þeim þannig að það er fátt sem virðist hasta í þeim efnum. Mér er þetta óskiljanlegt í ljósi þeirra formgalla sem hefur verið bent á, til að mynda hvað varðar meðhöndlun atvinnuveganefndar á umsögn umhverfis- og samgöngunefndar þar sem hefur verið bent á beinlínis formgalla á málinu fyrir utan stóru efnisatriðin. Það hefði á einhverjum tíma verið talið pólitískt klókt að við nýttum tímann til að ná einhverri sátt og mér er algjörlega óskiljanlegt að það sé boðað hér til kvöldfundar til að halda áfram (Gripið fram í.) umræðum um þetta mál sem greinilega þarf að fara aftur inn í nefndina áður en 2. umr. lýkur.