kvöldfundur.
Forseti. Það er svolítið merkilegt hvað forseti gleymir mér oft og setur mig til baka þegar ég bið um orðið, hvort sem er um fundarstjórn forseta eða eitthvað annað. Það er alveg óþolandi.
Það er líka óþolandi að hér sé verið að boða kvöldfund. Það er óþolandi og ólíðandi. Ef forseti vill herða hnútinn eins og er augljóst að forseti er að gera verði forseta að góðu því að hér er í gangi mál sem forseti ætti að geta leyst. Í staðinn fyrir að leysa málið er látið undan yfirgangi frá formanni atvinnuveganefndar og allt þingið sett í gíslingu þess formanns. Þetta eru óþolandi vinnubrögð, algjörlega óþolandi, þannig að ég segi aftur að ef forseti vill stríð við minni hlutann verði honum að góðu.