144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

kvöldfundur.

[15:02]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kom ekki að áðan í umræðunni við hæstv. forseta spurningu um af hverju hléið hefði ekki verið nýtt þannig að menn kölluðu til starfandi formann umhverfis- og samgöngunefndar þegar menn voru að ræða með hvaða hætti ætti að fara með málið. Nú kemur hv. þm. Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, og boðar að það sé ástæða til að skoða eitthvað af þessum málum og nefnir sérstaklega eitt mál, hvort þingið fái að fjalla um kerfisáætlun. Það er hið besta mál en ég skil ekki að ekki skuli liggja fyrir loforð um að menn leiði saman þau tvö sjónarmið sem hér hafa tekist á, annars vegar umhverfismálin og hins vegar atvinnumálin, sem þarf að leiða saman til að finna góða sátt. Ég hef ekki séð nein vandamál við að finna góða lausn. Það hafa komið ótal tillögur og ekkert af þessu er stórvægilegt. Það (Forseti hringir.) sem hv. formaður atvinnuveganefndar hefur kallað eftir er að menn afgreiði málið vel og fljótt og besta leiðin væri þá að kalla það inn í nefnd núna og afgreiða það fljótt og vel.