144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

kvöldfundur.

[15:05]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Það má kannski fara að segja um hv. þm. Jón Gunnarsson eins og sagt var forðum: Dýr mundi Hafliði allur. Þær fara að verða býsna kostnaðarsamar, uppákomurnar sem hv. þingmaður hefur staðið fyrir hér aftur og aftur varðandi störf þingsins.

Það er oft gott að gefa sér andrými ef menn eru í þröngri stöðu og snúinni og hafa ekki fundið leiðir út úr henni. Þess vegna spyr ég hæstv. forseta okkur til glöggvunar líka: Eru áform hæstv. forseta nú þau að halda áfram umræðu um þetta umdeilda mál til kvölds eða fram á nótt og ryðja öllu öðru út af dagskránni? Er þetta orðið að þvílíku forgangsmáli? Eða væri möguleiki í stöðunni að fresta, a.m.k. um sinn, umræðu um þetta mál og snúa sér að dagskránni að öðru leyti og láta á það reyna, t.d. fram undir kvöldmatinn, hvort menn gætu hnoðað upp einhverjum brúm á milli manna og nefnda á meðan menn notuðu tímann í að ræða önnur mál sem væru tæk til umræðu?