raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hv. þingmaður þekkir vel til sveitarfélaga og málefna þeirra en hann er einnig með góða þingreynslu. Milli meiri hluta tveggja nefnda í þinginu, hv. atvinnuveganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar, er nú ágreiningur. Í umsögn meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar segir að gera þurfi töluverðar breytingar á frumvarpinu og það gangi í öfuga átt við löggjafarþróun undanfarinna ára að því er varðar samráð við almenning og hagsmunaaðila og hvatt til þess að málum verði beint í sáttafarveg fremur en að um einhliða ákvörðunartöku verði að ræða líkt og frumvarpið gerir ráð fyrir. Mér finnst skilaboð meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar mjög skýr og segja berum orðum: Það þarf að breyta þessu frumvarpi.
Nú er deila komin upp milli tveggja nefnda. Mig langar að biðja hv. þingmann að segja mér hvort hann hafi áður á þingferli sínum upplifað að stjórnarþingmenn í tveimur nefndum tækjust á um veigamikið mál. Ég tek undir með hv. þingmanni að mér finnst að það eigi að gera hlé á þessari umræðu og það sé mjög mikilvægt að það sé gert þannig að 2. umr. geti svo haldið áfram eftir að menn eru búnir að koma sér saman um einhvern sáttafarveg ef mögulegt er.
Ég spyr hv. þingmann út í þetta með nefndirnar tvær og um lýðræðið ef við fáum ekki (Forseti hringir.) einhverjar tillögur í 2. umr. og að okkur sé sagt að við eigum að láta okkur nægja að þær komi við 3. umr.