raforkulög.
Hæstv. forseti. Þau verða mjög slæm, þau verða hörð, skapa leiðindi og óþarfanúning sem við eigum tvímælalaust að forðast. Ég tek fram að hvorki réttur ríkis né sveitarfélaga er algerlega ótvíræður í öllum tilvikum. Stundum þarf að taka tillit til þátta utan sveitarfélagsins. Ég nefni vegagerð á Vestfjörðum, um Teigsskóg, þar sem deilt var um rétt sveitarfélaganna til ákvarðanatöku og hins vegar þau lög og reglur sem við höfum sett á Alþingi sem snúa að umhverfisvernd og verndun náttúrunnar. Það verður að vera jafnvægi í hlutunum. Við deilum um flugvöllinn líka sem lýtur að skipulagsvaldi sveitarfélags og síðan öðrum sjónarmiðum. Þegar til kastanna kemur er þetta spurning um að virða hinn gagnkvæma aðila og það er ekki gert í þessu frumvarpi. Rétturinn er tekinn af honum og ég hvet til þess og tek undir (Forseti hringir.) með hv. þingmanni og öðrum úr stjórnarandstöðunni sem hafa talað fyrir því að við reynum að ná sátt um þetta og jafnvægi í þessu máli.