lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Það getur vel verið að menn geti í hita leiksins talað sig upp í alls konar hluti en ég vek bara athygli á því að hv. stjórnarandstaða er að segja að þegar hún er ósátt — hún er það oft á hverjum tíma, ég hef verið beggja vegna borðsins og get alveg farið yfir það í löngu og stuttu máli að við vorum ekki sérstaklega sátt við síðasta meiri hluta. (ÖS: Hvað gerðuð þið þá?) (Gripið fram í: Akkúrat.) Það sem menn eru bara að segja svo menn séu alveg með það er að í aðstæðum sem þessum ætla menn að hlaupa út. Með fullri virðingu fyrir hv. þm. Jóni Gunnarssyni, sem er mætur þingmaður, eru völd hans ekki þau sem menn leggja hér upp með. Ef hann er búinn að breyta öllum vinnubrögðum í þinginu er þetta pólitískt ofurmenni, (Forseti hringir.) hv. þm. Jón Gunnarsson.