lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé ágætt að minna okkur með reglubundnu millibili á hvað við erum að gera hérna og af hverju við erum stödd akkúrat þar sem við erum stödd núna. Af hverju er það? Það er vegna þess að frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um raflínur og kerfisáætlun var keyrt í klessu í meiri hluta atvinnuveganefndar og sett í þingið óvandað og óklárt til umræðu. Við í minni hlutanum og í hv. umhverfis- og samgöngunefnd höfum ítrekað rétt fram sáttarhönd á þessum tveimur sólarhringum sem bráðum eru liðnir frá því að málið var tekið á dagskrá. Það er enginn vilji til að ræða við okkur um þau efnisatriði sem uppi eru, það er enginn áhugi á því — og hvað gerist þá? Þá dettur fólki ekkert annað í hug en að keyra málið í kvöldfund og er svo vælandi undan því að þurfa að bera ábyrgð á eigin áformum (GÞÞ: Hver er að væla …?) og því að geta ekki (Forseti hringir.) mannað sínar eigin ákvarðanir. Eigum við ekki aðeins að staldra við það hvert þessi stjórnarmeirihluti er búinn að keyra þetta mál, þ.e. algerlega út í skurð?