144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

lengd þingfundar.

[16:28]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég tel mjög mikilvægt að stjórnarliðar sem og forseti geri sér grein fyrir því í hversu alvarlegan hnút málið er komið. Það er komið í mjög slæma stöðu sem kallar á róttækar aðgerðir því að það er ekki hægt að einn maður geti tekið þingið trekk í trekk í gíslingu. Ég skil ekki svona verkstjórn. Ég á ekki í neinum vandræðum með að vera hér í kvöld og hvaða kvöld sem er og ég hef aldrei veigrað mér við því að vera í vinnunni. Það að setja á fund út af egói einnar manneskju er hins vegar ekki í boði. Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð og ég verð að mótmæla þeim af öllu hjarta. Það er ekki stjórnarandstaðan sem setur þingið niður, (Forseti hringir.) það er meiri hlutinn og formaður atvinnuveganefndar.