144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[17:02]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ferli þessa máls er dálítið merkilegt þegar maður skoðar það í gegnum sinn flæking til þessa dags. Við 1. umr. tóku bara tveir þingmenn til máls. Ég gerði mér enga grein fyrir hvað málið er í rauninni djúprist. Og smám saman eftir því sem skrælt hefur verið utan af því í umræðunni hefur það runnið upp fyrir mér að málið getur haft mjög miklar afleiðingar, hugsanlega góðar, en þá þarf mikið að laga það, en það getur hins vegar leitt til mjög slæmra hluta. Þess vegna þarf mikið samráð, ég er alveg sammála hv. þingmanni um það.

Hins vegar út af því hvernig umræðan hefur lagst, líka af minni hálfu, vil ég segja það að þó að hv. þm. Jón Gunnarsson hafi bolinn til þess að taka við pústrum þá mega menn samt ekki gleyma því að um leið og er verið að deila á hann verð ég að segja það sem þingreyndur maður að auðvitað er ekki hægt annað en að segja að einmuna sleifarlag hefur verið, líka af hálfu hv. formanns umhverfis- og samgöngunefndar sem ekki tók þetta mál fyrir fyrr en í janúar. Og um svona mikilvægt mál, að halda bara tvo fundi um það í þeirri nefnd, finnst mér ekki gott.

Að málinu sjálfu, þá fannst mér að hv. þingmaður sem talaði áðan tæki nákvæmlega á kjarna málsins og þeirri grein sem mestu skiptir. Það sem er hættulegt í málinu, eins og búið er um það í dag, er hvað það flytur mikil völd til flutningsfyrirtækisins. Í dag er það þó þannig að í sveitarfélögum er því stjórnað af kjörnum fulltrúum en frumvarpið í reynd gefur flutningsfyrirtækinu vald til að skipa sveitarfélagi að breyta sínum skipulagsáætlunum til að samræma þær að kerfisáætlun. Sem hver býr til? Ekki kjörnir fulltrúar, heldur bara flutningsfyrirtækið. Og það eiga að vera raunhæfir kostir þar inni, en þar eru t.d. biðkostir og mér finnst erfitt að kalla það raunhæfa kosti.

Hins vegar þótti mér sem formaður atvinnuveganefndar í ræðu sinni, sem reyndist reyndar undir lokin vera mjög umdeild hér í dag, hefði þó komið fram með tvær hugmyndir að breytingum sem breyta því töluvert, þ.e. í fyrsta lagi að búa til raunhæfa kæruleið og í öðru lagi að kerfisáætlun fari (Forseti hringir.) í umræðu í þinginu. Hvað segir hv. þingmaður um þær?