raforkulög.
Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið í umræðunum þá getur verið um mjög viðkvæm mál að ræða. Það hefur verið nefnt hér í umræðunni: Hvað ef það er ákveðið, og Landsnet ákveður það, að leggja línur yfir hálendið? Sveitarfélögin og umhverfisverndarsamtök mótmæla og vilja finna leið til að koma í veg fyrir það, þá er sú leið ekki til samkvæmt frumvarpinu eins og ég skil það. Nú sit ég hvorki í hv. atvinnuveganefnd né í umhverfis- og samgöngunefnd og hef aðeins við umsagnir að styðjast. Í umsögn Landverndar er farið ágætlega yfir þetta og talað um það vald sem Landsnet fær þarna yfir sveitarfélögunum. Það verður ekki séð hvernig ætti að koma umhverfissjónarmiðum að í þessu ferli, hvernig taka ætti tillit til þeirra.
Eins varðandi Orkustofnun — nú er það ágætisstofnun en er hún ekki vanbúin? Þyrfti ekki að styrkja stofnunina ansi vel til að hún geti tekist á við þetta eftirlitshlutverk? Ég vil taka undir með þeim sem tala með þeim hætti. Það er skortur á starfsfólki, hugsanlega er skortur á fagfólki og það hefur verið nefnt að skortur sé á fagfólki á sviði verkfræði, hagfræði og lögfræði eins og Landvernd bendir á. Nú er ég ekki að segja að Orkustofnun geti ekki sinnt þessu hlutverki, alls ekki. Það getur vel verið að hún sé ágætlega til þess fallin en þá þarf að styrkja hana mun betur, bæði fjárhagslega og lagalega umgjörð líka.