raforkulög.
Forseti. Aðeins áfram með umhverfismálin. Það hefur verið gagnrýnt í umsögnum að ekki sé minnst á eða tekið tillit til umhverfismála, ferðamála, byggðamála eða skipulagsmála við framkvæmd kerfisáætlunar. Ég vil spyrja hv. þingmann út í vinnu við landsskipulag sem er unnin hjá Skipulagsstofnun. Það skiptir miklu máli hvernig við skipuleggjum hálendið okkar og skipulag á landsvísu; ég spyr hvort hv. þingmaður telji ekki að kerfisáætlun eigi að fara inn á landsskipulag, að þessir aðilar þurfi að tala saman og það liggi fyrir hvernig búið verður um kerfisáætlun gagnvart landsskipulagi. Er ekki hætt við, ef menn vinna þetta hver á sínum stað, að það rekist á í framkvæmd?