raforkulög.
Virðulegi forseti. Mér er ljúft og skylt að koma hér og gera grein fyrir afstöðu minni í þessu máli eins og hv. þingmaður óskaði eftir, af hverju ég er með fyrirvara og af hverju ég skrifa undir þetta nefndarálit. Það byggist svolítið á því hvernig unnið var með málið í nefndinni. Við fengum til okkar gesti, fulltrúa sveitarfélaganna og Landverndar, sem höfðu þær áhyggjur sem hafa verið raktar hér. Það er á starfssviði umhverfis- og samgöngunefndar að fara með málefni sveitarfélaga og annað slíkt. Ég vildi hafa almennt áhyggjur af þeim málefnum og beina því til atvinnuveganefndar að gætt yrði að þeim rétti sem við eigum að gæta samkvæmt þingsköpum. Mér fannst álitið ganga frekar langt og vera of nákvæmt af því að við fengum ekki hina hlið málsins í nefndinni. Við fengum ekki þá gesti sem gátu upplýst okkur um af hverju mikilvægt var að hafa lögin og láta þau ganga eins langt og þau gera og annað slíkt, þannig að það vantaði.
Ef við hefðum fengið þá gesti hefði umhverfis- og samgöngunefnd verið búin að hafa sömu umfjöllun um málið og atvinnuveganefnd, þannig að þetta er bara eitthvert verklag sem var mikið til umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd, að vita hvernig við ættum að vera. Mér fannst því álitið ganga svolítið langt og vera of ítarlegt miðað við það að við vorum ekki búin að heyra alla söguna. Ég var þess vegna með fyrirvara. En ég var á þessu nefndaráliti og mér skildist, þegar málið var afgreitt úr nefndinni, að öll nefndin væri á álitinu. Ég vildi því, í krafti samstarfs og samvinnu í nefndinni, vera á þessu áliti þó að það gengi þetta langt. En svo kom allt í einu upp úr dúrnum að ekki var öll nefndin á álitinu. Þetta er því allt hið skrýtnasta mál en svona var það.