144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[18:04]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Forseti. Nú er það vissulega svo að við 2. umr. eru mál á forræði þingsins. Það er bara einn ráðherra sem flytur þetta mál, en það eru gerðar alvarlegar athugasemdir í umsögnum sem hafa borist síðan málið var lagt fram, annars vegar um skipulagsmál, sem eru á hendi innanríkisráðherra, og hins vegar við umhverfismál, sem eru á hendi umhverfisráðherra. Ég held að það sé nauðsynlegt að þessir tveir ráðherrar séu viðstaddir og heyri umræðuna sem hér fer fram um þá málaflokka sem þeir hafa yfirumsjón með þannig að þeir geti íhugað hvort þeir þurfi ekki að grípa til einhverra ráðstafana til að halda uppi vörnum fyrir (Forseti hringir.) málaflokkana þegar frumvarpið heldur svo áfram.