raforkulög.
Herra forseti. Mér finnst þetta nokkuð rakið. Skipulagsstofnun er ein af undirstofnunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og þessi stofnun gerir mjög skýrar og ég mundi segja nokkuð alvarlegar athugasemdir við frumvarpið.
Það liggur líka fyrir að atvinnuveganefnd tekur ekki tillit til þessara athugasemda og þá er einboðið fyrir okkur, vegna þess að hér er um 2. umr. að ræða þar sem öll málsatriði eiga að liggja klár fyrir þinginu, að kvödd sé til fundarins hæstv. ráðherra Sigrún Magnúsdóttir, sem er umhverfis- og auðlindaráðherra. Það verður að koma fram hvort það sé ágreiningur millum ráðuneytis hennar og hins vegar meiri hluta atvinnuveganefndar.
Ég tek því undir, sem er sjaldgæft að ég geri, en ég tek undir ósk hv. þm. Birgittu Jónsdóttur um að menn stöðvi þingfund, geri hlé á honum þangað til sá hæstv. ráðherra getur komið til fundarins.