raforkulög.
Hæstv. forseti. Það gleður mig að heyra að von sé á hæstv. innanríkisráðherra hingað í umræðuna og líklega verður að virða það við hæstv. umhverfisráðherra ef hún er upptekin við önnur störf. Það er alla vega ágætt, við erum þá búin að fá skýringu á því hvers vegna hún er ekki viðstödd umræðuna. En í ljósi þess að von er á hæstv. innanríkisráðherra vil ég taka undir þær óskir hv. þingmanna og beini því til hæstv. forseta að við frestum þessum fundi þar til innanríkisráðherra er kominn í hús, það ætti varla að vera svo langur tími í það. Það virtist ekkert vefjast fyrir hæstv. forseta að efna til atkvæðagreiðslu um að hafa kvöldfund og ég get ekki séð af hverju það ætti að vefjast fyrir hæstv. forseta að gera örstutt hlé á þingfundi þar til ráðherrann er kominn í hús.