144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[18:50]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra sé væntanleg til fundar. Ég get tekið undir það sem hér var sagt áður að heimsókn hennar gæti í sjálfu sér orðið stutt eða þyrfti ekki að vera löng ef hún mundi gleðja okkur með því að koma hingað og staðfesta það einfaldlega að hún stæði á bak við formann umhverfis- og samgöngunefndar og flokksbróður sinn, hv. þm. Höskuld Þórhallsson, varðandi þá afstöðu sem hann og umhverfis- og samgöngunefnd hefur tekið til málsins.

Sama gildir í raun og veru um hæstv. innanríkisráðherra, ef hún deilir þeim sjónarmiðum sem umhverfis- og samgöngunefnd er með varðandi sveitarfélögin og síðan má finna í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er mikið fengið. Þá hefðum við atbeina þessara tveggja hæstv. ráðherra til að beita sér við flokksbræður sína, hv. þm. Jón Gunnarsson og hv. þm. Höskuld Þórhallsson, til að koma aftur á stjórnmálasambandi milli fagnefnda þingsins. En það er auðvitað algert lágmark, af því að við erum nú einu sinni öll í pólitík, að stjórnmálasambandi sé haldið uppi milli fagnefnda og Alþingis.