144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[18:54]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því að hæstv. umhverfisráðherra sé að koma hingað, vonandi til að taka þátt í umræðunni, ekki bara til að hlusta heldur vera virkur þátttakandi í umræðunni. Það er eitt af því sem við höfum kallað eftir, þau sem hafa verið í þessari umræðu og verið með gagnrýni á vinnubrögð meiri hluta atvinnuveganefndar, að ekki skuli vera hlustað á þá miklu gagnrýni sem kemur fram í umsögnum um þessi mál.

Það væri óeðlilegt ef hæstv. ráðherra umhverfismála stæði ekki með formanni umhverfis- og samgöngunefndar í þessu máli. Á að skilja það þannig að Framsóknarflokkurinn ætli að afneita hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni í þessu máli? Er það virkilega þannig að það treysti sér enginn til að koma hér í pontu og tala máli formanns umhverfis- og samgöngunefndar (Forseti hringir.) sem lagði fram gagnrýna umsögn?