raforkulög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir þetta svar og í rauninni gleðst ég yfir því að ég hafi ekki misskilið grundvallaratriði í þingstörfum þegar ég verð svona hissa á því hvernig þessu nefndaráliti er háttað.
Mig langar að nota seinna andsvar mitt til þess að spyrja meira út í efnislegt innihald frumvarpsins, sem við hljótum auðvitað líka að ræða og ættum í rauninni bara að ræða en ekki að þurfa að eyða orðum í hina þinglegu meðferð sem ætti náttúrlega að liggja fyrir. Mig langar að spyrja hv. þingmann um sýn á það að hér sé viðhaft fornaldarlegt fyrirkomulag þar sem ákvörðunarvaldið er tekið frá hinum lýðræðislega kjörnu fulltrúum í þeim umbúnaði sem kerfisáætlunin er sett í. Til hvaða fyrirmyndar eða málaumbúnaðar telur hv. þingmaður að við ættum frekar að líta þegar kemur að kerfisáætlun til þess að sýn aðkomu almennings að málinu sé tryggð?