144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[20:11]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir góða ræðu og tek undir öll þau sjónarmið sem þar komu fram og vil ég ítreka það sem kom fram í ræðunni að þegar koma fram greinileg mistök er mikilvægt að útkljá þau annars staðar en í þingsal. Því tel ég mjög mikilvægt og tek undir með þingmanninum að við gerum hlé á umræðunni og höldum áfram með þau mál sem voru á dagskránni í dag af því að ég veit að það er kominn ákveðinn sáttavilji meðal ólíkra aðila í málinu.

Mig langaði að spyrja þingmanninn hvort hún þekki til þess að svona verklag tíðkist, hvort þetta sé ekki verklag sem við þurfum að tryggja að hefðahelgist ekki á Alþingi. Hv. þingmaður taldi upp þau atriði sem standa út af, þau eru veigamikil, en er ekki rétt skilið hjá mér að það sé ekki mjög langt á milli ólíkra sjónarmiða í þessu málið? Væri ekki auðveldara að finna einhvern flöt á að ná málinu út í sátt fyrir utan þingsalinn heldur en fyrir innan?