raforkulög.
Virðulegi forseti. Það er náttúrlega ekki gott þegar hæstv. ráðherrar geta ekki gefið sér tíma til að hlusta á umræður, sérstaklega í máli þar sem svona mörg álitamál eru uppi og snerta málefnasvið nokkurra ráðuneyta. En ég get ekki annað en vonað að hæstv. ráðherrar séu í sambandi við stjórnarþingmennina, séu að ræða við þá um það hvernig megi lenda þessum málum með farsælum hætti.
Þarna erum við að tala um hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem hefur lýst því yfir og sagt að mikilvægt sé að finna leið þannig að sem flestir geti komið að málum. Þarna erum við að tala um hæstv. innanríkisráðherra sem fer með málefni sveitarfélaganna og þekkir vel til þess hversu mikla áherslu sveitarfélögin leggja á að skipulagsvald þeirra sé ekki skert, og síðan er umhverfisráðherra og það vantar umhverfisvinkilinn í frumvarpið með öllu.