144. löggjafarþing — 71. fundur, 26. feb. 2015.
raforkulög.
305. mál
Forseta er kunnugt um að verið er að skoða ýmis þau atriði sem hv. þingmaður vék að. Þau munu væntanlega skýrast aðeins þegar líður á þetta kvöld og forseti mun íhuga með hvaða hætti umræðunni verður þá fram haldið. En eins og sakir standa telur forseti ástæðu til að umræðunni verði haldið áfram en ítrekar að hann vill skoða hvernig staðið verður að áframhaldandi umræðu þegar þau mál verða aðeins ljósari fyrir forseta.