144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[20:48]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir að gera grein fyrir því að til standi að gera hlé á þingfundi kl. 9. Ég held að það sé afar mikilvægt og ég held að allir sjái það, bæði þingmenn og aðrir þeir sem fylgjast hér með, að það er dálítið hjákátlegt að eiga hér í umræðu um eitthvað sem er sannarlega í þann veginn að breytast í eitthvað annað. Og um hvað á þá sú ræða að snúast? Fyrir utan það að ræðutímanum er þannig háttað í 2. umr. að fyrsta ræða er 20 mínútur, sú næsta 10 og svo 5 mínútur eftir það, þannig að menn eru að klára ræður fyrir eitthvað sem er fyrir fram úrelt í raun og veru. Hvað er það þá sem menn eiga að nálgast? Það er spurning líka um þessi sanngirnissjónarmið. Er eðlilegt að ætlast til þess að fólk eyði ræðutíma sínum í eitthvað sem er ekki lengur aktúelt, ef svo má að orði komast, sem er ekki lengur hið raunverulega þingmál sem er undir ef eitthvað kemur út úr þeim sáttaumleitunum sem ku vera í pípunum?