144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 75/2013 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

425. mál
[21:39]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mjög en mig langar þó að nefna, af því að stundum finnst mér umræðan á Alþingi snúast um að við séum að innleiða EES-gerðir sem ekki endilega varða okkar hagsmuni, að þetta finnst mér ágætisdæmi um gjörð sem hefur áhrif, ekki bara á Íslandi heldur úti um allt, og er mjög mikilvægt dæmi um það þegar alþjóðlegt samstarf þarf til. Þessi gjörð snýst um það að koma í veg fyrir ólöglegt skógarhögg sem er gríðarlegur vandi, sérstaklega við miðbaug, í regnskógunum þar. Þar eru menn að reyna að komast fram hjá lögum og reglum til að höggva timbur með tilheyrandi afleiðingum fyrir lífríkið, fyrir þá sem þar búa, hópa frumbyggja, fyrir utan auðvitað langtímaáhrif á loftslag hér á jörð.

Í slíkum málum þarf alþjóðlega samvinnu og þó að okkur finnist þetta ekki varða okkur mjög mikið í þessu pínulitla landi og þar sem við erum ekki dagsdaglega að velta fyrir okkur skógarhöggi og afleiðingum þess á okkur held ég að þetta sé ágætisdæmi um mál sem virðist okkur ekkert sérstaklega viðkomandi í byrjun en snýst um það að ef þjóðir heims taka höndum saman er hægt að koma í veg fyrir hluti á borð við ólöglegt skógarhögg sem hefur allar þessar slæmu afleiðingar sem ég nefndi í mjög stuttu máli. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta en vil nýta tækifærið og minna á að við ræðum meira um neikvæð áhrif EES-gjörða í þessum sal en í þeim má líka finna jákvæð áhrif innan alþjóðlegs samstarfs. Ég vildi bara nota tækifærið til að minnast þess og það er ekki síst á sviði umhverfismála.