144. löggjafarþing — 72. fundur, 27. feb. 2015.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill upplýsa um tilhögun þinghaldsins í dag. Atkvæðagreiðslur um 3.–6. dagskrárliði verða um klukkan 11.30, þ.e. að loknum sérstöku umræðunum sem fram fara á eftir. Jafnframt er fyrirhugað að halda tvo þingfundi til viðbótar í dag með tilheyrandi atkvæðagreiðslum því að fyrirhugað er að afgreiða mál hæstv. innanríkisráðherra um nauðungarsölur sem lög seinna í dag.