landmælingar og grunnkortagerð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni fyrir góð orð í garð frumvarpsins, hann er greinilega maður sem hefur hugleitt þetta og sinnt þessu. Ég kem þá strax að spurningu þingmannsins. Ég sagði það í ræðu minni áðan að hinn staðlaði kvarði væri felldur út en við teljum að Landmælingar geti komið sér upp þeim landupplýsingagrunni og miðlað honum af þeirri nákvæmni, eins og stendur hér, sem þörf er á hverju sinni og tækni leyfir, svoleiðis að stofnunin geti sinnt betur hlutverki sínu. Við viljum hvetja stofnunina eða gera henni kleift að vera með sem allra nákvæmastar upplýsingar og miðla þeim sem bestar eru á hverjum tíma. Þess vegna var ákveðið að setja ekki staðlaðan kvarða inn eða einhvern ákveðinn mælikvarða því að kannski er það orðið úrelt eftir eitt, tvö ár sem við álítum vera það besta í dag.
Ég tel mikla þörf á að nútímavæða stofnunina og er stolt af því að hafa getað flutt þessa tillögu. Fjöldi ferðamanna knýr náttúrlega líka á margvíslegar breytingar en þetta þarf að gera þannig að öll stafræn gögn um holt og hæðir, gil og gljúfur á þessu landi verði sem aðgengilegust. En ég þakka enn og aftur þingmanninum fyrir jákvæð viðbrögð.