landmælingar og grunnkortagerð.
Virðulegi forseti. Eins og ég skil gagnrýni fjármálaskrifstofu er núna greitt fyrir ákveðna hluti ef menn ætla að nýta sér þá. Ef á að ganga þannig fram að þeir verði ókeypis dregur það eðli málsins samkvæmt úr hvatanum til að framleiða þá. Gefum okkur til dæmis að við munum ekki setja næga fjármuni til þessa og þá dregur hreinlega úr því að nákvæmar upplýsingar verði á kortum á Íslandi. Þannig skil ég þessa gagnrýni.
Ég held að það sé alla vega nr. eitt að við vitum hvað þetta þýðir. Hvert erum við að fara með þetta? Hér talaði maður sem þekkir málið mjög vel, þá vísa ég í hæstv. fyrrverandi umhverfisráðherra sem hafði með þennan málaflokk að gera á sínum tíma, og ég efast ekki um það eina sekúndu að hv. þm. Össur Skarphéðinsson þekkir rekstur Landmælinga Íslands þar af leiðandi betur en sá sem hér stendur, en við verðum að vita á hvaða leið við erum. Erum við að ganga hér þannig fram að við munum minnka hvatann til að framleiða kort og slíkar upplýsingar, hvort sem það eru rafræn kort eða eitthvað annað? Þetta á allt að verða ókeypis. Þá munum við draga úr hvatanum til að fá þær nákvæmu upplýsingar sem hv. þingmaður vísaði til.
En stóra málið finnst mér vera, og þetta er auðvitað angi af því: Hvernig ætlum við að nýta fjármuni skattgreiðenda? Við erum sammála því að við viljum sem nákvæmastar upplýsingar. Ef einhver er að sinna því að koma fram með nákvæmar upplýsingar þá þurfum við kannski ekki að hafa jafn miklar áhyggjur og ef það væri þannig að enginn hefði áhuga á að sinna því eða ef þetta snerist um þá sem eru sjúkir eða þurfa á aðstoð að halda. Þetta finnst mér vera stóra málið og við verðum að fá svar við því.