landmælingar og grunnkortagerð.
Virðulegi forseti. Arnar Sigurðsson er nú ekki hér til andsvara en hann sagði að þótt ótrúlegt mætti virðast þá hefðu 270 millj. kr. árlega til Landmælinga Íslands aldrei skilað eiginlegum landmælingum, hvað þá heilum kortagrunni. Það eru orð greinarhöfundar.
Mér finnst eftir að ég er búinn að hlusta á þessa stuttu ræðu hv. þingmanns að ef það þarf að rannsaka eitthvað sérstaklega út af fyrirhugaðri virkjun eða öðru þá þurfa menn eðli málsins samkvæmt að gera það. Þeir aðilar sem ætla að fara út í slíka virkjun ættu greiða það en ekki skattgreiðendur, það er mín skoðun. (ÖS: Gögnin verða til og verða ókeypis öllum.) Já, nákvæmlega, þar erum við akkúrat komin að kjarna málsins. Þarna er verið að skoða eitthvað sérstaklega vegna verkefnis sem einhver mun vonandi hagnast á og ég tel að sá aðili eigi að greiða fyrir það en ekki almenningur með sköttum sínum. Það finnst mér vera frekar augljóst.
Mér finnst kjarni vandans vera sá að við erum alltaf að ræða þetta út frá stofnun í staðinn fyrir að ræða þetta út frá því hvað við viljum að hið opinbera geri. Það finnst mér vera stóra málið. Við viljum sjá til þess að til séu nákvæmar upplýsingar en ég held að vísu að kort séu ekki vandamálið. Ég ferðast þó nokkuð mikið um landið og ég hef ekki orðið í neinum vandræðum með kort, alla vega ekki sem almennur ferðamaður. (ÖS: Þú villist líka oft.) Hv. þingmaður kallar fram í að ég villist oft, en það hefur ekkert með kortin að gera. Það er bara af því að sá sem hér stendur er mjög oft utan við sig. Mér þykir leiðinlegt að það komi fram í þingræðu en ég verð að gangast við því, það eru of margir sem vita af því að ég villist mjög oft, en ég vona að það lagist nú eftir því sem ég verð eldri og minna utan við mig.
En stóra málið er þetta: Við þurfum að haga okkur í þessu sem öðru eftir því: Hvað viljum við að ríkið geri? Í hvað eiga peningar skattgreiðendanna að fara? Ef 270 millj. kr. fara í þessa stofnun fara þær ekki í hjúkrunarrými á meðan. Svo mikið er víst.