eyðing upplýsinga úr gagnagrunni lögreglunnar.
Forseti. Ég lagði fram fyrirspurn á síðasta kjörtímabili árið 2012, um eitthvað sem kallað er málaskrá lögreglunnar, LÖKE öðru nafni. Í svari við fyrirspurninni sem ég lagði fram um hvort einhver ákvæði væru um eyðingu upplýsinga í gagnagrunninum kom fram að engin ákvæði væru um það. Mig langaði þess vegna að spyrja hæstv. innanríkisráðherra hvort eitthvað hafi verið gert síðan árið 2012 til að skerpa á og setja fram ákvæði þar að lútandi. Mjög mikilvægt er að fólk upplifi að upplýsingum um það í svo umfangsmiklum gagnagrunni sé eytt.
Fram kom í svari við spurningu minni á sínum tíma að hvorki meira né minna en 19.621 fyrirtæki og 325.003 einstaklingar hafi verið skráðir hjá lögreglu, þar af 19.754 látnir. Mig langar því að spyrja hvernig því er háttað þegar fólk er tekið af skránni og hvernig því er háttað þegar einstaklingur deyr, hvað þarf til að viðkomandi verði tekinn af málaskránni?
Síðan mun ég koma með ítarlegri spurningar í seinna fyrirspurnaslottinu sem lúta að því hvernig skráningin er, hverjir hafa aðgang og hverjir fá gögn úr gagnagrunninum, því að mjög miklir gallar eru á því hvernig skráð er í þessa málaskrá.