144. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2015.

uppbygging húsnæðis Landspítala.

557. mál
[16:21]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni að komin er hreyfing á byggingarmál nýs Landspítala á nýjan leik eftir hikst í ein tvö ár.

Varðandi fjármögnun má minna á að þingmálin eru frekar tvö en eitt sem liggja fyrir í nefnd, annars vegar þingsályktunartillaga um þingmannahóp og hins vegar um tekjustofn til að standa straum af þessu verkefni. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum ekki að ræða það í samhengi við að við séum svo fátæk að við verðum að selja fjölskyldusilfrið til þess að byggja nýjan Landspítala. Í því sambandi má benda á að arðgreiðslur Landsbankans einar og sér í fyrra og á þessu ári upp á tæpa 44 milljarða eru svipuð fjárhæð og kostar að byggja meðferðarkjarnann, þannig að slíkar arðgreiðslur og þótt minni væru í eitt til tvö ár í viðbót, ættu að duga fyrir verkefninu. Það er búhnykkur langt umfram forsendur fjárlaga í bæði skiptin, í fyrra og í ár. Það er því ekki slík nauðung hér á ferð sem menn hafa viljað vera láta.

Að lokum vakti það athygli mína að útboð á fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans er í hlutafélagi en ekki sem venjuleg opinber framkvæmd. (Forseti hringir.) Ég hélt að í samræmi við gildandi lög ætti að sjálfsögðu að færa þann þátt út úr hlutafélaginu og vinna síðan að honum eins og hefðbundinni opinberri framkvæmd. Eða er það ekki svo, eins og (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra vitnar í, að það liggja fyrir lög um að meðrferðarkjarni skuli byggður sem opinber framkvæmd?