ljósleiðarar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Kristjáni L. Möller, fyrir að vekja máls á ljósleiðurum og fjarskiptamálum yfirleitt. Ég get glatt hann með því að á fimmtudaginn, þann 5. mars, er lokafundur hjá starfshópi sem var skipaður af innanríkisráðherra. Megintillaga starfshópsins — sem ég á sæti í, ég fékk þann heiður að fá að vinna að þessu mikilvæga máli — mun verða mjög byltingarkennd. Í henni er lagt til að skilgreint verði að aðgangur að háhraðanettengingu verði grunnþjónusta fyrir alla landsmenn hvar á landi sem er. Í dag hafa rúmlega 13.000 íbúar (Forseti hringir.) ekki aðgang að viðunandi háhraðaneti en við leggjum til (Forseti hringir.) að árið 2020 (Forseti hringir.) hafi þessi hópur aðgang að 100 megabita tengingu.