vinna til úrbóta á lagaumhverfi, reglum og framkvæmd nauðungarvistunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. innanríkisráðherra kærlega fyrir þessi svör og það gleður mitt hjarta að það eru í rauninni fleiri atriði sem hún kynnir til bóta í mannréttindaátt sem verða kynnt á Alþingi innan tíðar, næstu daga eftir því sem mér skildist.
Varðandi geðheilbrigðismálin er það auðvitað afar viðkvæmur málaflokkur og mjög nauðsynlegt að mínum dómi að endurskoða þau viðmið sem hafa verið notuð og þær aðferðir þar, vegna þess að þar eru ákvæði sem eru algjörlega barn síns tíma og fleiri annmarkar eru á núgildandi lögum en þeir sem ég nefndi í fyrri ræðu minni. Til dæmis langar mig að nefna þann annmarka sem er að í dag getur maki, ættingi í beinan legg eða systkini lagt fram beiðni um nauðungarvistun á sjúkrahúsi. Að mínu mati hafa þeir aðilar ekki yfir nægjanlegri fagþekkingu að búa til að taka slíka ákvörðun eða meta hvort þörf er á slíku neyðarúrræði.
Ég veit að það færist mjög í vöxt að þetta hlutverk fari í raun yfir á félagsþjónustuna þar sem fagfólkið er til staðar, að biðja um þetta neyðarúrræði. Mér finnst það alveg sjálfsagt og líka til að koma í veg fyrir að það hugsanlega gæti verið misnotað eða ekki rétt notað, að ákvörðun sé tekin á faglegum grundvelli og af fagfólki. Ég þakka kærlega fyrir góð svör.