144. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2015.

vinna til úrbóta á lagaumhverfi, reglum og framkvæmd nauðungarvistunar.

487. mál
[17:51]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Virðulegi forseti. Aðeins út af þessum tímaramma þá fer frumvarpið núna í kynningu á vef innanríkisráðuneytisins þannig að ég vonast til þess og geri ráð fyrir því að á morgun geti menn kynnt sér efni þess, þótt það verði ekki lagt fram hér fyrr en aðeins síðar, en á morgun verður það orðið opinbert til að menn geti kynnt sér það og myndað sér skoðun á efni þess.

Ég vil segja það hér, af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega þann vanda sem blasir við fjölskyldum í þessum viðkvæmu aðstæðum, þá held ég að við vitum öll að svona erfiðleikar geta sett verulegt mark sitt á fjölskyldur þegar þær þurfa að grípa inn í veikindi sinna nánustu og þegar þarf að grípa til þessara úrræða, sem eru auðvitað neyðarúrræði, þá getur það reynst óskaplega erfitt, það eru mjög þung spor fyrir fjölskyldu að standa frammi fyrir því. Að mínu mati er mjög mikilvægt að við fáum aðkomu þeirra sem gerst þekkja að málinu, að þeir komi og fari fram á þau úrræði sem þarf til þess að hjálpa þeim einstaklingum sem um er að ræða, því allt er þetta nú til þess að hjálpa veiku fólki aftur til heilsu.