144. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2015.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Hæstv. landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson var ekki kjörinn til ársins 2030. Þegar hann gefur yfirlýsingar um allt að 15 ára samninga við landbúnaðinn vekur það þess vegna ákveðnar spurningar um fyrirætlanir ráðherrans. Það er ástæða til að árétta að núverandi ríkisstjórn hefur ekki lýðræðislegt umboð til að festa óbreytta landbúnaðarpólitík í sessi til 15 ára. Allir samningar þar að lútandi verða að vera bundnir þeim skýru skilyrðum að fjárveitingavaldið á hverjum tíma þurfi að koma þar að því að það þarf að fara fram lýðræðisleg kosning á fjögurra ára fresti um landbúnaðarpólitíkina.

Samningar um niðurgreiðslur hafa raunar verið til of langs tíma að mínu mati hingað til. Þær hafa verið fram yfir einar alþingiskosningar og má nánast segja að með því hafi lýðræðið að hluta verið tekið úr sambandi. Menn hafa í raun og veru þurft að sigra í tvennum alþingiskosningum í röð til að geta komið fram lýðræðislegum breytingum á því atriði. En þegar menn eru farnir að tala um tollverndina í langtímasamningum vakna áhyggjur vegna þess að tolla geta menn ekki samþykkt á einu þingi mörg kjörtímabili fram í tímann. Jafnvel þó að þeir fyndu leið til þess að lögum er það ekki í neinu samræmi við lýðræðishefð okkar og þá ríku áherslu sem við höfum lagt á að fjárveitingavaldið á hverjum tíma er hjá Alþingi. Nýr meiri hluti sem nýir kjósendur kjósa í næstu alþingiskosningum þarf að hafa frjálsar hendur til að gera breytingar á þeim áherslum sem áður hafa verið lagðar. Til þess höfum við kosningar á fjögurra ára fresti og allir 15 ára samningar verða að taka mið af því.