144. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2015.

störf í allsherjar- og menntamálanefnd.

[14:16]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Það er mjög athyglisvert að þegar þetta mikla hugðarefni Sjálfstæðisflokksins, brennivín í búðirnar, á í hlut þá sprettur hæstv. fjármálaráðherra upp og fer á bólakaf í umræður um þingstörfin í þingnefndum. Þá hefur hann skoðun á málunum þegar þetta sérstaka forgangsmál á í hlut.

Það er allt afbrigðilegt við það hvernig að þessu máli hefur verið unnið, allt. Þetta er eina þingmannamálið, eina þingmannatillagan sem hreyft hefur verið við af einum 17 til dæmis í þessari viðkomandi þingnefnd. Það lá svo mikið á að efnahags- og viðskiptanefnd var ætlað að skila áliti í desember í miðjum önnum skattamálanna. Þá var rekið á eftir því af hálfu formanns nefndarinnar eins og lífið lægi við. Svo er beitt bellibrögðum og klækjum til að ná málinu úr nefnd. Það hefur ekki heillavænleg áhrif á trúnaðarsamstarf í þingnefnd ef menn geta ekki treyst því að þeir megi ekki bregða sér af bæ, ekki bregða sér fram, því að þá sé sætt færis til þess að mynda annars konar meiri hluta en er í nefndinni á grundvelli fastamanna. Það er það sem hér var gert. Það er andstætt þeirri (Forseti hringir.) venju að sómakærir formenn í þingnefndum virði óskir þingmanna um að afgreiða ekki mál út (Forseti hringir.) nema tryggt sé að allir séu viðstaddir.