144. löggjafarþing — 77. fundur,  4. mars 2015.

störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Nú hefur verið lagt fram frumvarp í þinginu er heimilar fjármálastofnunum að veita gengistryggð krónulán. Fyrir þessum lánum eru ströng skilyrði og ýmis úrræði í frumvarpinu sem eiga að hindra að heimili landsins geti skuldsett sig með lánum eins og þessum. Vegna þessa máls og annarra mála sem geta komið inn á neytendavernd hef ég nú þegar rætt við hv. samflokksþingmenn mína sem eiga sæti í hv. efnahags- og viðskiptanefnd þingsins og beðið um að neytendavernd sé höfð ofarlega í huga og verki við alla vinnuna. Tekið var afskaplega vel í þessa fyrirspurn og beiðni því að öll vitum við hvernig staðan er í dag. Ég hljóma eflaust eins og biluð plata þegar ég segi næstu setningar: Núna, nokkrum árum eftir hrun, eru enn einstaklingar og fjölskyldur í landinu sem sitja eftir með sárt ennið, eru með gengistryggð lán, sams konar lán og dæmd hafa verið ólögmæt, með sams konar lánaskilmála og dæmdir hafa verið ólögmætir, bæði í héraðsdómi og Hæstarétti, en of margir af þessum einstaklingum fá ekki leiðréttingar á lánum sínum nema með því að sækja mál sitt fyrir dómstólum. Það er algjörlega óþolandi, virðulegur forseti. Auk þess er vert að benda á að hv. efnahags- og viðskiptanefnd, en það kom fram hjá hv. þingmanni í nefndinni sem ég ræddi við og fékk leyfi frá viðkomandi til að nefna þetta, hefur verið að skoða lög um fjármálafyrirtæki. Í því samhengi er líka algerlega tilvalið að hafa vel að leiðarljósi hag neytenda í þeirri vinnu. Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til dáða í þessum verkum, við megum ekki horfa upp á sama ástand skapast aftur.