störf þingsins.
Hæstv. forseti. Í orðum mínum í gær um árshátíðarhald Isavia ohf. var örlítil ónákvæmni. Þau mátti skilja sem svo að til íslenskra tónlistarmanna hefðu gengið 16 milljónir en hið rétta er náttúrlega að til þeirra gengu 2 milljónir af heildarkostnaði við árshátíðina sem var 16 milljónir. En ég fer ekki ofan af því að það er ekki við hæfi að opinbert fyrirtæki greiði 16 milljónir til árshátíðarhalds starfsmanna sinna.
En ég ætlaði að koma hér upp til að tala um eina jákvæða frétt af mörgum úr íslensku atvinnulífi. Það var mjög ánægjulegt að heyra að Íslensk matorka hefur nú gert ívilnunarsamning við íslenska ríkið og í burðarliðnum er fyrirtæki á Reykjanesi sem mun veita 50 manns vinnu og framleiða 3 þús. tonn af bleikju til útflutnings. Þetta er fyrirtæki númer tvö á Reykjanesi sem nýtir affall af virkjunum á Reykjanesi til fiskeldis. En það verður að segjast að ólíkt hafast menn að á Reykjanesi og í Reykjavík vegna þess að á Hellisheiði streymir fram affallsvatn af Hellisheiðarvirkjun, öllum til ama og engum til gagns. Það er borað niður með jarðskjálftaáhrifum í stað þess að nýta þetta vatn til þess að ala fisk eða rækta grænmeti sem væri hægur vandi. Það er satt að segja alveg óskiljanlegt að teknir skuli vera til kosta virkjunarkostir án þess að nýta það sem þeir hafa upp á að bjóða.
Annað dæmi er sem einnig snertir Orku náttúrunnar eða fyrrum Orkuveitu Reykjavíkur og það er virkjunin á Nesjavöllum. Þaðan streymir heitt vatn út í Þingvallavatn og við vitum ekkert hvaða áhrif það hefur. Það hefur ekki verið rannsakað, en vatnið streymir frá Nesjavallavirkjun ósnert, ónýtt, engum til gagns, öllum til ama. Það hlýtur að vera hægt að taka betur á í þessu, herra forseti.