málefni geðsjúkra fanga.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka þessa umræðu. Þetta er gamalt og viðvarandi vandamál sem er óþolandi að ekki hafi tekist að leysa með fullnægjandi hætti og blettur á okkar samfélagi og augljóst mannréttindabrot. Eins og málshefjandi kom inn á þá hafa stjórnvöld fengið áminningu, m.a. frá pyndinganefnd Evrópuráðsins og einnig í skýrslu umboðsmanns Alþingis, í úttekt á Litla-Hrauni 2013. Við horfum til þess að það verði einhverjar lagfæringar með byggingu nýs fangelsis og eins má segja að endurbygging á réttargeðdeildinni hafi þarna hjálpað til en það þarf meira til.
Það er augljóst að togstreita hefur verið á milli fangelsisyfirvalda og heilbrigðiskerfisins um það hvernig eigi að leysa þetta mál. Fjármagnið vantar á báðum stöðum en það er ágreiningur um hver eigi að veita þjónustuna, það er ágreiningur um hvers konar þjónusta eigi að vera í boði og hver eigi að greiða fyrir hana. Það er augljóst að stjórnvöld verða að skera þarna úr og taka á málinu og koma því í ákveðinn farveg.
Það hefur komið fram að þessi þjónusta hefur verið veitt í gegnum heilbrigðiskerfið á Litla-Hrauni en nú er það þannig að enginn geðlæknir sinnir henni eins og er. Sú togstreita sem ég var að lýsa hefur gjarnan lýst sér í því að menn hafa sagt: Menn eru að afplána refsingu, þeir eru ekki ósakhæfir og geðdeildir sjúkrahúsanna eru ekki fangelsi. En það hefur líka komið fram að það þarf auðvitað að styrkja mannaflann og bæta menntun þeirra sem eru á Litla-Hrauni þannig að menn séu betur undirbúnir að vinna með þá sem eiga við geðræn vandamál að stríða. En ég held að eina leiðin sé sú sem hæstv. ráðherra nefndi, það er að stofna sérstaka sjúkradeild þar sem þessir aðilar, sem eru að mér skilst ekki nema fjórir til fimm á ári, geti afplánað undir heilbrigðiskerfinu og það sé þá dómsúrskurður um að þeir eigi að afplána á þeim stað, fái örugga heilbrigðisþjónustu og öryggi um leið og þeir afplána refsingu. Hvort sú deild verði staðsett á Litla-Hrauni, nýja fangelsinu eða í tengslum við (Forseti hringir.) réttargeðdeildina læt ég eftir ráðherra að skoða. Ég hvet hann til dáða (Forseti hringir.) og tel óhætt að segja að það verður mikill stuðningur við að leysa málið.