144. löggjafarþing — 77. fundur,  4. mars 2015.

fjármálafyrirtæki.

571. mál
[16:52]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég fór yfir nokkur sjónarmið í fyrri ræðu minni við umræðu málsins á þingfundi í gær og kem fyrst og fremst til að hnykkja á nokkrum sjónarmiðum sem þar komu fram og hafa líka komið fram í umræðunni hjá öðrum sem og að færa til bókar nokkur atriði sem ekki komust þar að. Fyrst og síðast snýst þetta mál um þær breytingar sem hér eru undir sem snúa að því sem kallað er breytileg starfskjör en heitir bara á íslensku bankabónusar og er fyrirbæri sem við höfum lært að við þurfum að varast. Það er ástæða til að hafa áhyggjur af því að hæstv. fjármálaráðherra hafi ekki gætt nægilegrar varúðar í tillögum sínum, hvað þá með þær hugmyndir sem viðraðar hafa verið um að auka heimildir til bankabónusgreiðslna í meðförum nefndarinnar sem ég tel að sé ákaflega óráðlegt. Hins vegar lýtur þetta að þunnri eiginfjármögnun, þeim sjónarmiðum sem hv. þm. Frosti Sigurjónsson fór ágætlega yfir í sinni ræðu, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, og ég treysti að nefndin muni fylgja vel eftir í þeim breytingum sem hún vinnur að á málinu milli umræðna.

Hvað varðar bónusana höfum við aðeins rætt það sem snýr að þeim sem eiga að hafa eftirlit. Ég held að það séu eðlilegar efasemdir um réttmæti þess að þeir sem sinna eftirliti innan fjármálastofnana, sem er ákaflega mikilvægt starf, séu með einhvers konar bónuskerfi í því. Að minnsta kosti þarf að ígrunda mjög vel fyrir hvað kaupauki er veittur, um hvað bónusinn snýst. Ég ætla ekki að útiloka fyrir fram sérstakt kaupaukakerfi ef menn flettu ofan af einhverju misjöfnu. Ef aukið væri við kaup eftirlitsaðilanna vegna slíks gæti bónus stuðlað að því að auka neytendavernd, tryggja betur fjármálalegan stöðugleika og þess háttar. En þá verða réttir hvatar að snúa að þessu fólki. Ég held að það sama gildi um auknar heimildir til bónusgreiðslna hjá því starfsfólki sem ekki er lykilstjórnendur í fjármálafyrirtækjunum heldur veitir viðskiptavinum bankanna ráðgjöf og á að þjónusta viðskiptavini bankanna með beinum hætti. Auðvitað koma bónusar vel til greina í þeim störfum eins og öðrum ef þeir lúta að réttum hlutum. Ég held að það sem maður hljóti fyrst og fremst að vara við og varast sérstaklega sé að einhvers konar kaupaukakerfi í bönkunum hvetji starfsfólk til að beina neytendum sem takmarkaða þekkingu hafa á fjármálaviðskiptum í áhættusamar leiðir. Ég fékk eftir ræðu mína um það efni í gær nokkur viðbrögð frá fólki sem fór fyrir hrun mjög illa út úr svokallaðri ráðgjöf bankanna um fjármál þess. Það er óeðlilegt að greiddir séu bónusar ef menn fá fólk til að flytja bankainnstæður í hlutabréf eða veðsetja íbúðarhúsið sitt til að leggja inn í ávöxtunar- eða verðbréfasjóði eða sýna aðra viðlíka hegðun. Ég held að maður hljóti að spyrja sig: Er yfir höfuð ástæða til að einhverjir kaupaukar séu tengdir ráðgjöf bankanna við neytendur? Það kunna að vera önnur sjónarmið um fagfjárfesta, fyrirtækjaþjónustu og viðskipti bankanna við aðila sem ekki eru neytendur, upplýsta aðila á markaði sem sjálfir eiga að hafa þekkingu, eru með áhættufjármagn og eiga að vera í fullum færum til að vega og meta þau tilboð sem þeir fá frá fjármálastofnunum. Það verður að tryggja það eins vel og hægt er. Ég held að fyrsta atriðið til að bæta hér neytendavernd sé að tryggja að það séu engir hvatar leyfðir í bankakerfinu til að verið sé að hvetja neytendur til að auka fjármálalega áhættu sína. Það má ekki verðlauna (Forseti hringir.) fyrir það.